Friday, December 7, 2012

Páskaungarnir í Bath

Eins og áður hefur komið fram á blogginu þá kom páskaunginn Magnús með mér út til Bath. Bróðir hans, Pétur kom svo með Eyþóri þegar hann flutti til mín stuttu seinna. Þeir voru orðnir ansi pirraðir um daginn þegar svona langt var liðið á dvölina okkar hér án þess að þeir fengu að kíkja með okkur út þannig að við leyfðum þeim að skoða sig aðeins um borgina rétt áður en Eyþór fór heim.





Pétri fannst gaman að skoða fallegu húsin og kíkja í búðir. 




Magnús vildi hins vegar bara leika sér!




Fékk meira segja að fara eina ferð á hestinum í hringekjunni...helsáttur með það. 




Bræðurnir vildu ólmir komast á Instagram.. ég lét það eftir þeim.


Hér eru þeir á aðaltorgi borgarinnar með Bath Abby í bakgrunni.
- Það er soldið skemmtileg saga á bakvið þessa mynd. Við tókum eftir þegar við vorum að stilla upp ungunum á skilti að það var kona hágrátandi fyrir utan búðina sem rétt sést í hér til vinstri. Vinkonur hennar tvær komu svo út úr búðinni að reyna að hugga hana og bentu henni svo á okkur. Þær löbbuðu svo framhjá okkur og grátandi konan skellihló að okkur og sagði eitthvað á þá leið hvað þetta væri svakalega"cute". Þetta litla móment gladdi hjartað mitt mikið en mér finnst ég alltaf vera að lenda í svona litlum atvikum hér í Englandi. Fólkið hér er svo ótrúlega yndislegt og kurteist. Falleg mannleg samskipti (m.a. við ókunnugt fólk) er eitthvað sem mér finnst mikilvægt að hafa í mínu daglega lífi. Það þarf ekki að vera mikið en mér finnst Bretar vera sérstaklega góðir í mannlegum samskiptum, annars veit ég ekki.. það þarf svo lítið til að gleðja mig. Aukabros, fyndið komment eða lítið góðverk eins og að halda hurðinni fyrir mann eða borga fyrir mann í strætó (lenti í því fyrstu dagana mína hér) gefa hversdagsleikanum gráa aðeins meiri lit.

P.s. Það væri nú gaman að heyra aðeins meira í ykkur, það er oft verið að segja við mig "já svo fylgist ég alltaf með þér á blogginu" en svo er ekkert verið að segja hæ hér! ;) Nú er ég ein í útlöndunum í viku í viðbót, á fullu í ritgerðaskrifum þannig að það mega endilega bíða eftir mér skemmtileg skilaboð þegar ég kíki á bloggið í lærdómspásunum.. :) 

9 comments:

ester said...

Þrátt fyrir vondan mat og allskonar pirrandi og skrýtið þá mega bretarnir eiga það.. þeir eru vinalegir og skemmtilegir.

Herdís said...

Hvernig get ég annað en sett inn skilaboð elsku Vala smart. Þessi texti er einstaklega fallegur og ungarnir eru met :) Ég öfunda þá pínu á ferðalögunum.

Sigurrós Ösp said...

vá hvað bræðurnir eru sætir! þessi færsla gerði minn hversdagsleika allavega aðeins litríkari :)

Heiða Rut said...

Hæ! Ég skoða alltaf, og fletti oft upp gömlum uppskriftum á blogginu þínu sem ég nota reglulega. Er einmitt að spá í að gera jarðaberjamöffins um helgina ;)

Bið að heilsa unga-börnunum ykkar!

Valgerður said...

gaman að heyra stelpur mínar! :)

Sólveig said...

svo flottar myndir sem þú/þið takið!

Skemmtilegt :)

Fjóla said...

Ég skoða alltaf reglulega :) þessir ungar eru of fyndnir og skemmtilegir!

Hafdís said...

Ég fylgist alltaf með ;)

EddaRósSkúla said...

Æi þú verður að fara henda inn e-u djúsí bloggi. Helst frá Brussel :)