Sunday, September 30, 2012

Laugardagur í London: Camden


Fórum á æðislegan stað í Camden og fengum okkur Mohito. Sjáið ljósin hér að ofan, svo  fallegt!
Löbbuðum svo í gegnum matarmarkað þar sem þessar ansi stóru pylsur voru til sölu, sem og þessi girnilegi laukur..

Hafið heyrt um Churros? Þetta er djúpsteikt S-amerískt góðgæti (líka vinsælt á Spáni&Portúgal) sem ég hafði séð á matarbloggum og var forvitin að prófa. Við Bergey fengum okkur einn skammt saman bæði með karamellu og súkkulaði... þetta var himneskt!
Svo fengum við okkur jafnvel eins og eitt glas af Sangriu.. fyrst við vorum í suðrænum gír ;)

Við enduðum svo daginn á ljúffengri máltíð á tælenskum stað þar sem þeir eru með BYOB (Bring your own booze) policy. Það er víst ekki óalgengt að sumir (litlir) veitingastaðir bjóði fólki að mæta með sitt eigið áfengi því vínveitingarleyfið er dýrt. Við fögnuðum því með einni hvítvín úr hverfisbúðinni..

5 comments:

Anonymous said...

Ótrúlega skemmtilegar myndir! :)
Bergey

Valgerður said...

svo skemmtilegur efniviður til að mynda líka ;)
TAKK FYRIR MIG aftur, þetta var snilld!

Unknown said...

vá en gaman :) hlakka til að upplifa London með þér e-n tímann aftur :)

Ásdís said...

Það var einmitt allt fullt af svona BYOB veitingastöðum í Montréal.

Valgerður said...

já er það? mjög spes regla komandi frá Íslandi en mjög vel þegin ;)