Wednesday, June 27, 2012

Upprifjun sumarið 2011 - Súgandisey

Þar sem þetta blogg var ekki orðið til í fyrra og þar sem ég á enn fullt af fallegum myndum í tölvunni sem húka bara þar og hafa heldur ekki farið á facebook margar hverjar, þá langar mig að rifja aðeins upp sumarið 2011 og deila með ykkur myndum. 

Þessar eru teknar við sólsetur á Súgandisey í Stykkishólmi en við eyddum þar nokkrum dögum í ágúst í fyrra með móðurfjölskyldunni minni. 

Afi minn ólst upp fyrstu árin sín í þessu bárujárnshúsi alveg niður við sjó. Frændi hans á nú húsið og hefur verið að gera það upp. Fjölskyldan fékk að gista þar en við Eyþór og Páll Orri gistum í hjólhýsinu sem sést þarna á myndinni.


Stykkishólmur er að mínu mati eitt fallegasta bæjarstæði á landinu. Ég er rosalega hrifin af Snæfellsnesinu yfir höfuð en við fórum þangað í nokkra daga í fyrrasumar og einnig sumarið 2009. Þetta sumarið ætlum við þó að sleppa ferð á Snæfellsnesið en ferðast frekar um Suður, Austur og Norðurland. 

3 comments:

Heiða Rut said...

Svo fínt! Langar einmitt á Snæfellsnesið í sumar.

Sólveig said...

Ég, Jón Þór og hluti af fjölskyldunni minni vorum á sama tíma og þið á Stykkishólmi. Sáum alltaf bílinn ykkar við höfnina en aldrei rákumst við á ykkur í þessu litla bæjarfélagi! Mæli svo með ostaslaufunum í bakaríinu þarna! ;)

Valgerður said...

já Heiða, þið verðið!

og hhaha what! ekki vissi ég það Sólveig.. mjög fyndið, við vorum þarna alveg í 4 daga og mikið að þvælast.