Showing posts with label vangaveltur. Show all posts
Showing posts with label vangaveltur. Show all posts

Sunday, January 6, 2013

Afsakið hlé

Hæ!
Og gleðilegt ár og allt það..
Það er eiginlega eins og prófatörn hjá mér þessa dagana, er á fullu að vinna í tveimur ágætlega stórum ritgerðum sem ég á að skila næstkomandi föstudag til háskólans í Bath. Sem þýðir að allt jólafríið hefur einkennst af ritgerðaskrifum..eða þá samviskubiti að vera gera eitthvað annað þegar ég á að vera læra.

 

 

Svona líta dagarnir mínir út.. bókasafn, myrkur, leiðindaveður ... og latte. Að vísu næ ég ekki að gera alveg jafn gott og flott og uppáhalds kaffið mitt á kaffihúsinu mínu í Bath (sem myndirnar eru af, svo gott þegar froðan er "stinn"!) en ég læt mig hafa það. Bara 5 dagar eftir og þá er ég frjáls! Þá verð á dugleg hér.. á slatta af myndum í pokahorninu :)

Monday, November 19, 2012

Neglur og orsakasambönd

Ég er alltaf að velta fyrir mér hinum ýmsu mögulegu orsakasamböndum.
- Af hverju verður húðin á mér alltaf svona slæm í útlöndum? Ætli það sé vatnið eða er ég að borða óhollari mat?
- Hvað veldur stressi í mínu lífi?
- Af hverju líður mér oft betur í líkamanum eftir að hafa borðað óhollan mat en hollan?
... Þetta eru orsakasamböndin sem ég hugsa um í mínu persónulega lífi en svo er ég auðvitað endalaust líka að velta fyrir mér ýmsum orsakasamböndum í samfélaginu og fæ oft útrás fyrir þessum pælingum í náminu mínu. 

Nýjasta pælingin er virkilega djúp: Hvers vegna eru neglurnar á mér svona fínar og sterkar eftir að ég flutti til Englands?

Ég tók með mér íslenskar þaratöflur út en þær eiga að herða neglurnar og þær hafa alltaf gert það síðan ég byrjaði að taka þær.. upp að vissu marki. Málið er bara að neglurnar mínar klofna alltaf og það er óþolandi þar sem ég næ aldrei að láta þær vaxa. Ég nagaði neglurnar í mörg ár en hætti því fyrir um 3 árum og er því enn að reyna að gera þær fínar og sterkar.




Ég tók líka með mér glæra naglalakkið sem á að herða neglurnar, mæli með þessu Maybelline lakki:




Þetta tvennt hefur alltaf virkað ágætlega hingað til en síðan ég flutti út eru neglurnar fínni sem aldrei fyrr.

Það rann upp fyrir mér þegar ég fór að brjóta heilann um hvað gæti verið að orsaka þessu að skýringin tengist mikillar minnkunar á vatnsnotkun. Og þá meina ég ekki að ég hafi ekki verið duglega að drekka ógeðslega breska vatnið, því það hef ég svo sannarlega, en hendurnar mínar snerta mun sjaldnar vatn en áður fyrr.

Skýringar?
- Við erum með hreingerningarkonur sem koma hingað allavega 1x í viku (stundum 2x) og þrífa íbúðina. Ég hef því ekkert þurft að skúra né þurrka af en ég fann alltaf mikinn mun á nöglunum mínum heima eftir þrif.
- Eyþór sér um allt uppvask.
- Ég fer mun sjaldnar í sturtu eftir að ég kynntist SNILLDAR þurrsjampói! Ég hafði aldrei notað þetta og var vön að fara í sturtu á hverjum einasta degi, annars varð hárið svo skítugt. Mæli innilega með þessu:




Slétta og þunna hárð mitt verður allt annað þegar það er smá skítugt og ef maður spreyjar þessu yfir rótina, þá lítur hárið ekki út fyrir að vera skítugt plús að maður fær lyftingu og þykkt (hér mæli ég líka með þessum sniiiiiilldar bursta til að túbera):




Niðurstaðan er sú að ég verð víst að vera með hreingerningakonu og nota þurrsjampó ef ég ætla að halda nöglunum svona fínum.

....jæja, nú ætti ég að vera góð í Mastersritgerðina, þar sem ég mun að vísu nota aðeins vísindalegri rannsóknaraðferðir og mun fjalla um aðeins dýpra málefni en naglavöxt ;)

Tuesday, November 13, 2012

Vangaveltur í Englandi

Yfirhöfuð er þetta blogg vettvangur til þess að deila myndum sem við Eyþór tökum og á ekki að vera of persónulegt en stundum fæ ég þörf fyrir að tjá mig, og þá sérstaklega á mínu móðurmáli! Maður getur orðið ansi þreyttur á því að þurfa alltaf að tjá sig á ensku og hvað þá skrifa heilu ritgerðirnar..  Svo er þetta nú helst fyrir vini og vandamenn heima :)
  • Það hefur verið skemmtileg (og stundum ekki svo skemmtileg) áskorun að fara úr umhverfi þar sem maður hefur allt til alls og í það umhverfi að hafa lítið af"nauðsynjahlutum" (að maður hélt..). Við eigum t.d. einn pott til að elda í og engin skemmtileg eldhúsáhöld sem ég er vön, ekkert sjónvarp, erum með eitt stykki af handklæði á mann, eina spariskó, svona 20% af fötunum sem við eigum, engan sófa, engan hita í íbúðinni á daginn, hver þvottur kostar 700 krónur osfv.
  • Bretar eru svakalega kurteisir! Bara eiginlega allir. Þjónusta á veitingastöðum hefur í 99% tilvika verið til algjörrar fyrirmyndar og meira segja 18 ára krakkarnir hérna eru mjög kurteisir.
  • Einn prófessorinn í deildinni minni (kennir mér að vísu ekki en ég spjallaði við hann í "welcome reception" í byrjun annar) heitir Ingólfur. Hann er samt þýskur og hefur enga tengingu við Ísland eða hin Norðurlöndin þar sem þetta nafn gæti verið notað. Hann sagði mér að móðir hans hafi verið að hlusta á útvarpið rétt eftir að hann fæddist og að þar hafi verið fræðsluþáttur um Ísland. Í kjölfarið ákvað hún að skýra son sinn eftir manninum sem fann Ísland! Síðan þá hefur nafnið vakið undrun hjá flestum en það var talið mjög skrítið í Þýskalandi. Prófessorinn ber það þó ekki fram eins og við myndum gera með mjúku F-i (IngólVur).
  • Ég fæ hellu í eyrun á hverjum einasta degi hérna. Sem er ekki gott fyrir svona eyrnaverkjabarn eins og mig. Málið er það að til að komast í skólann þarf ég að taka rútu sem fer upp svona 2ja kílómetra langa brekku (sem þýðir að það labbar eiginlega enginn í skólann plús það að rútukerfið liggur niðri þegar það snjóar... sjáum hvernig það fer í desember).
  • 18 ára krakkarnir sem eru að koma í háskólann að upplifa sitt fyrsta háskólaár að búa einir í fyrsta sinn...þeir eru hér til að djamma. Ég sver, þetta lið djammar á hverjum einasta degi hérna. Í hvert einasta skipti sem ég er fram á kvöld í skólanum og tek strætó aftur heim niðrí bæ, þá er hópur af unglingum í strætónum á leiðinni í partý. Í svona 90% tilvika eru þau í einhvers konar búningum. Fyrst hélt ég að þetta væri í kringum Halloween en neinei, þau eru enn í búningum. Einu sinni var hermannaþema, teiknimyndafígúruþema, einu sinni voru þau öll í einhverjum bolum og í hin skiptin er bara basic búningaþema.
  • Kínverski nágranninn okkar er mjög furðulegur. Hann kom yfir um daginn og gaf okkur fullt af ávöxtum, sagðist þurfa að skreppa í einhvern tíma. Ég sá hann svo tveimur dögum seinna þannig að varla hefur hann farið langt. Síðan sá ég hann koma einn morguninn inn með tvær stórar ferðatöskur og ég spurði hvort hann hefði verið að koma tilbaka. Hann sagði já. Síðan heyri ég einhver læti fyrir utan hurðina okkar nokkrum klukkutímum seinna og kíki útúm skráargatið og þá er drengurinn aftur að fara út með þessar tvær ferðatöskur?? Hann er frá Kína þannig að ég efast um að hann sé að skreppa heim svona af og til.. Ráðgátan er enn óleyst.
Ég get nú ekki haft myndalaust blogg þannig að hér er ein símamynd af fiðluleikara sem við sáum hérna niðrí bæ. Ég átti ekki til orð yfir þessu þar sem maður rétt svo getur staðið á einum fæti og spilað á fiðluna í smá parti af Nornadansinum!!