Thursday, May 10, 2012

Síðasta helgi

 Þessi var bara tjillandi í miðasölu leikhússins...

Laugardagurinn var algjör snilld, hann byrjaði á Fjölmenningardag í Duushúsum en þar hlustaði ég á fyrirlestur höfundar verðlauna - og metsölubókarinnar Ríkisfang: Ekkert sem ég las stuttu eftir að hún kom út. Bókin snerti mig djúpt og það var gaman að hlusta á Sigríði Víðis - eins og reyndar alltaf, hún er með ótrúlega þægilega framkomu, nær að vera skýr, örugg og einlæg allt í senn.
Dagskráin endaði á Fjölmenningarkaffihúsi sem var mér vel að skapi, hægt var að gæða sér á kræsingum frá fullt af löndum. Uppáhaldið mitt var kjötfylltur snúður frá Kyrgistan.

Ég kíkti svo aðeins við í Frumleikhúsinu og horfði á nokkur atriði úr Brúðkaupsnótt, það var yndislegt að sjá leikgleðina í leikurunum. Rosa flott söngatriði líka hjá þeim :)

Þar sem sólin lét sjá sig var kíkt í pottinn hjá mömmu og pabba og grillað. Mamma gerði mig svo fína fyrir kvöldið og svo brunaði ég í bæinn til að partýast með háskólastelpunum mínum. 

Daginn eftir fórum við stelpurnar svo í brunch á Vegó, í sól en skítakulda. Restin af deginum var eytt í ekki nokkurn skapaðan hlut nema afaheimsókn og þynnkumat - maccaroni&cheese og ofnbakað brauð með skinku&mexíkóosti.

Monday, May 7, 2012

Fyrsta grill sumarsins



Um leið og sólin fór að skína var farið og náð í grillið niðrí geymslu. Reykjavíkurdömurnar komu með undursamlega góðan fisk frá Fylgifiskum sem við grilluðum á svölunum mínum í blíðskaparveðri (svona miðað við það sem á undan hefur gengið). Grillaður (Fylgifiska) fiskur er eitt það besta sem ég fæ, maríneringarnar þeirra eru svo ótrúlega góðar alltaf og fiskurinn sjálfur líka. 
Sumarlegu diskamotturnar voru teknar fram sem og nýja stellið sem ég var að fá í afmælisgjöf frá ömmu minni sem er ansi dugleg í glerlist :)
Eftir að vera passlega saddar eftir fiskinn (sem er annað sem ég elska við fisk) ákváðum við að misþyrma maga okkar svolítið með því að háma í okkur ávaxta/súkkulaðifondú.
Við lágum svo hálf meðvitundarlausar í sófanum það sem eftir lifði kvölds..


Yndislegt kvöld með stelpunum mínum, það er ótrúlegt hvað smá sól getur gert stemninguna góða (þó kuldaskræfan sé enn í vetrarúlpunni þessa dagana...)

Thursday, May 3, 2012

London (seinni hluti)


Það var gaman að róta í Spitalfields markaðnum og öllum skemmtilegu vintage búðunum í kring um Brick Lane en þannig eyddum við laugardeginum í London. Þar var tískusýning í gangi og sumir voru með grímur og byssur...(?)
Ég hef alltaf verið veik fyrir stóra (órafmagnaða) basssanum og mig langaði í sæta blómastellið.
Mér fannst gaman að sjá stóru stafina mynda BATH í einni versluninni þar sem Bath hefur mikið með vangaveltur mínar þessa dagana um framtíðina að gera...

Tuesday, May 1, 2012

London (fyrri hluti)


Við Sara samstarfskona mín fórum til London á vinnufund (ekki myndaður) en nýttum dagana til og frá til þess að fara út að borða með (nýjum og gömlum) vinum, kíkja út á lífið og rölta um Brick Lane og hverfið í kring. 
Þrátt fyrir að hótelherbergin okkar voru pínkuponsulítil og það rigndi svolítið þá létum við það ekki á okkur fá og skemmtum okkur mjög vel í stórborginni sem ég hafði ekki heimsótt í 12 ár.

Sunday, April 29, 2012

Eyðibýli


Mig grunar að þið eigið eftir að sjá ennþá fleiri myndir af eyðibýlum í sumar en við Eyþór vonumst til þess að sjá fleiri á ferð okkar um landið í júlí. 
Þetta eyðibýli er bara rétt hjá bústaðnum okkar, hinu megin við Búrfellið. Við stóðumst ekki mátið að kíkja á það en okkur til mikils ama var hvergi hægt að komast inn í húsið.
Þannig að útimyndir verða að duga í þetta skiptið.. og svo ein hoppmynd í lokin.

Friday, April 27, 2012

Brussel


Ég fór í skemmtilega vinnuferð til Brussel í lok mars. 
Á þessum myndum má sjá það sem Brussel er þekktust fyrir; vöfflur, dónasúkkulaðibörn, fallega gamla bæinn og ESB byggingar.

Tuesday, April 24, 2012

Kjúklingur með kex-raspi



Jæja þá er ég komin heim frá London og myndir frá þeirri ferð og Brussel ferðinni eru eitthvað óþægar.. þær nenna ekki að lóda sér inní tölvuna mína. Myndavéla, kortalesara, korta og linsustússið er mikið á mínu heimili þannig að þessir hlutir fara oft á fleygiferð sem þýðir að stundum lóda ég ekki inn myndum fyrr en löngu eftir að þær eru teknar.. En þetta kemur allt saman á endanum.


Að öðru -Namm hvað þessi kjúllaréttur er góður! Djúsí og fáránlega einfaldur.
Ég gerði hann um páskana uppí sumarbústað þar sem ég eyddi helginni með þremur strákum og tveimur á unglingsaldri og þeir borða ekkert hvað sem er... Þetta er því ekki hollasti rétturinn í bókinni en svona ekta laugardags þegar maður vill tríta sig :)


Þetta er í rauninni engin uppskrift en hér eru allavega innihaldsefnin, hversu mikið þið viljið nota af hverju fer algjörlega eftir smekk.


Kjúklingur með kex-raspi
Kjúklingabringur
Mango Chutney 
Mexíkó ostur
Ostakex með chilibragði (fæst t.d. í Bónus og Hagkaup í bláum pakka) eða bara Ritzkex


Gott er að byrja á því að krydda bringurnar með kryddi að smekk. Síðan smyrja þær vel með mango chutney í eldföstu móti. Mexíkó osturinn er rifinn yfir bringurnar. Því næst er kexið mulið yfir.
Inní ofn á 180 í um 25 mín minnir mig, ég er aldrei með neinn fastan tíma..


Rosa gott að hafa sætar kartöflur og salat með.


Guten Appetit!